Skilaréttur

Skil og skipti í netverslun.

Viðskiptavinir eiga rétt á að skila vörum sem keyptar eru innan 14 daga frá afhendingu. Skilaréttur rennur út eftir 14 daga.

Hafðu samband við vöggugjafir símleiðis 695-7752 eða með tölvupósti voggugjafir@voggugjafir.is og við aðstoðum þig með skil eða skipti á vörunni.

Við endurgreiðum þá upphæð sem greidd var við kaupin þegar varan hefur skilað sér til okkar og við höfum gengið úr skugga um að hún sé óskemmd. Vöggugjafir ehf tekur ekki ábyrgð á þeim vörum sem eru í skilum og hafa ekki borist versluninni.

Einnig er hægt að skila vörum að Ásvöllum 14, 301 Akranesi.

Athugið: Til að fá vöru skilað þarf hún að vera í góðu ástandi, óskemmd og ónotuð. Verðmiðar og merkingar skulu vera á sínum stað. Skór skulu vera ónotaðir og í umbúðunum sem þeir voru seldir í. Vöggugjafir ehf. áskilur sér rétt til þess að neita að taka við vörum sem standast ekki þessar kröfur.

Endurgreiðsla: Við endurgreiðum vöruna með millifærslu. Endurgreiðsla fer fram þegar við höfum fengið vöruna í hendurnar og gengið úr skugga um að hún sé í góðu ástandi. Það getur tekið nokkra daga fyrir endurgreiðslu að ganga í gegn.

Skipti: Hægt er að skipta vörum í aðrar vörur. Til að afgreiða skipti skal hafa samband við verslun símleiðis eða í gegnum tölvupóst. Skilyrði er að kaupandi framvísi sölukvittun eða reikningi fyrir viðkomandi vöru.