Dásamlega fallegt þriggja hluta sett frá Tahari Baby
Einstaklega sætt og rómantískt sett í fallegum, dempuðum rósalit.
Kjóllinn er með mjúkum, síðum ermum, fallegu flauels pilsi og skrautslaufu í mittinu. Með fylgja ljósbleikar buxur með fíngerðu blómamynstri og samsvarandi hárband með slaufu.
Kjóllinn er með innbyggðum samfelluhluta og smellum að neðan sem auðvelda bleyjuskipti.
Settið inniheldur:
- Samfellukjóll með flauels pilsi
- Ljósbleikar, blómamynstraðar buxur- flauel
- Hárband með slaufu- flauel
Fallegt sett sem hentar jafnt við hátíðleg tilefni sem og þegar litlu dömurnar eiga að vera sérstaklega fínar.



















