RZ Baby – Blómasett – salvíugrænt
Einstaklega fallegt fjögurra hluta ungbarnasett frá RZ Baby by Rachel Zoe.
Settið er í mjúkum ljósum lit með fíngerðu blómamynstri í salvíugrænum tónum. Fallegir fylgihlutir í samstæðum grænum lit fullkomna þetta krúttlega sett.
Settið inniheldur:
- Langerma samfellu með fallegu blómamynstri
- Hárband með stórri slaufu í sama mynstri
- Salvíugræna ungbarnaskó með slaufum
- Samlitar sokkabuxur
Dásamlegt sett fyrir sérstök tilefni, myndatökur eða sem falleg sængurgjöf.
Vörumerki: RZ Baby by Rachel Zoe
















